top of page

Bílafilmur

Sólarfilmur í bíla

 

Bílafilman er reyklituð og fáanleg í eftirfarandi styrkleikum :

50 er ljósasta bílafilman

35 er næst ljósust

20 er næst dekkst

05 er sú dekksta

 

Fallegur bíll með filmu. Allir bílar eru fallegri þegar búið er að setja reyklitaða filmu í þá. Litur filmunnar dregur fram gluggalínu bílsins, það er ekki að ástæðulausu sem bílaframleiðendur og umboð sýna nýja bíla með filmum í auglýsingum sínum.

Hita einangrandi. Filman kemur í veg fyrir að bíllinn hitni eins mikið að sumri og eykur einangrunargildi á veturna einnig þannig að hitinn geislar ekki eins hratt út.

Minnkar birtu og glýju í augu. Filman kemur í veg fyrir að sterk sól eða jafnvel sól sem er lágt á lofti blindi þá sem eru í bílnum.

Öryggisatriði. Lendi bíll í árekstri og rúður brotna heldur filman rúðunni saman þannig að hún splundrast ekki út um allt og yfir farþega.

Þjófavörn. Dökk filma minnkar líkur á því að þjófar sjái hvað er inni í bílnum og þannig minnka líkur á innbroti. Jafnvel þó viðkomandi brjóti rúðu fer rúðan ekki auðveldlega í sundur sökum styrkleika filmunnar.

Börnunum líður betur með sólarfilmu í rúðum.

Stöðva upplitun sökum sólarljóss. Filmurnar stöðva 98% af útfjólubláum geislum sólarinnar (UV geislar) og þannig minnkar upplitun inni í bílnum.

Rispuvörn. Sólarfilman er með rispuvörn sem þýðir að auðvelt er að þrífa rúður þótt filman sé komin á (þó má ekki nota harða hluti til að skafa filmuna)

Hafið samband við sérfræðinga okkar til að fá verðáætlun eða tilboð í  sólarfilmur í bílinn þinn.

Fleiri gerðir af filmu eru fáanlegar en þær sem hér eru taldar hér upp, hafið samband við okkur ef þessar filmur leysa ekki ykkar þarfir.

Betri litur,betri gæði og betri ending. Það er það sem þú færð þegar þú velur Johnson´s Marathon filmu.

Marathon línan er í senn flottur litur og gefur góða vörn gegn sólinni.

Með almennum svörtum lit hentar Marathon filman í nánast öllum bílum á markaðnum.

Hún er gerð úr tvöföldu lagi (varanlega litað lag með ál þynnu) sem heldur hlutum köldum, dregur úr glampa og dregur úr 99% UV geisla

Sama hvernig bíl þú átt þá gefur Johnson Window Films’ Ray Guard fallegt yfirbragð.

Margir bílar í dag eru útbúnir með útvarps eða GPS loftneti í rúðu og er Ray filman sérstaklega hönnuð til að hafa ekki áhrif á loftnetssamband.

Minnkun á hita

Filmur nútímans geta dregið allt að 63% úr hita. Kaldari innrétting veitir meiri þægindi og eykur afköst AC kerfi bílsins sem þar af leiðandi minnkar eyðslu bílsins.

Minnkun á upplitun

Bílafilmur draga úr 99% skaðlegra UV geisla og draga verulega úr hita. Þessir tveir þættir hjálpa til við að varna því að innrétting þ.a.s. sæti, teppi og mælaborð upplitist.

Minnka heilsu áhættu

Snerting við UV geisla eru þekktir  fyrir að vera slæmir fyrir húð og augu. Bílafilma veitir virka sólarvörn fyrir skaðlegum geislum sólarinnar.

 

Glampi

Glampi frá sól eða framljósum annara bifreiða geta minnkað yfirsýn yfir veg. Með filmu næst að draga verulega úr þessum áhrifum.

Öryggi

Bilafilma gerir rúðuna mun sterkari þannig að erfiðara er fyrir þjóf að komast inn um rúður bílsins.

Einnig varnar filman því að gler dreifist víða við árekstur. Margir slæmir áverkar úr árekstrum eru af völdum glerbrota.

Útlit

Til eru margar gerðir af filmum fyrir bílinn þinn. Um er að ræða filmur sem nánast sjást ekki upp í mjög dökkar filmur, allt eftir hvað hentar.

 

 

Ísetning

Ísetning á bílafilmum er fljótleg og einföld leið til að gera bílinn bæði fallegri og öruggari.

Hafðu samband og pantaðu tíma.

bottom of page