top of page

Öryggisfilmur

Myndir

Hvers vegna öryggisfilma?

 

•Öryggisfilma kemur  í veg fyrir þjófnað eða hægir verulega á þjófnum

•Getur komið í veg fyrir alvarleg slys á fólki ef gler brotnar óvænt fyrir slysni

•Stöðvar útfjólubláa geisla frá sólinni

 Kemur í veg fyrir upplitun á munum í gluggum, húsmunum og gólfefnum.

•Rúða þolir meiri hita í eldsvoða án þess að springa

•Hugarró fyrir húsnæðis- og fyrirtækjaeigendur

Gler í heimilum og skrifstofum veita nauðsynlega birtu. Gler getur verið hættulegt og jafnvel banvænt ef það brotnar þar sem gler brotnar í fleka sem geta flogið í allar áttir. Veður, óhöpp og innbrot eru helstu áhættuþættir í því að gler brotni.Sem betur fer er til fyrirbyggjandi lausn til að verja fólk, dýr og húsmuni  fyrir fljúgandi glerbrotum. Ísetning á öryggisfilmu veitir slíka lausn. Áreiðanleg polymer filman bindur sig við glerið og heldur því saman ef brot á sér stað.

Í slæmu veðri getur öryggisfilma komið í veg fyrir slys og skemmdir  vegna glerbota.

Jarðskjálftar geta einnig brotið rúður þannig að filman kemur í veg fyrir að glerbrot fari af stað.

Einnig geta hlutir á borð við bolta, stein frá sláttuvél eða eitthvað sem fellur á rúðu geta verið stórhættulegir. Filma kemur í veg fyrir hugsanleg slys eða tjón af völdum glers.

Því miður búum við í samfélagi  sem er ekki laust við glæpi, þjófnaði og skemmdarverk. Filman varnar auðveldu aðgengi í gegnum brotna rúðu.

Öryggisfilman fæst glær eða með lit og í nokkrum þykktum allt eftir stærð rúðunnar.

UV filma er glær ósjáanleg filma sem dregur úr UV geislum sólarinnar um 99%. Frábær lausn fyrir búðarglugga eða heimili sem vilja varna upplitun á fatnaði og húsgögnum.

 

 

 

 

Sandblástur filman er hvít hálfgegnsæ filma sem hönnuð er til að hleypa  ljósi í gegn um sig. Tilvalin á staði þar sem friðhelgi þarf. Tilvalin á baðherbergi, skrifstofur og fundarherbergi.

bottom of page